Fall­ein­kunn í Foss­vogs­skóla

Valgerður Sigurðardóttir borgarfulltrúi:

Í mínum bókum fær Reykjavíkurborg falleinkunn fyrir það hvernig staðið hefur verið að málum við Fossvogsskóla. Það er hræðilegt að áfram sé að finnast mygla í skólanum, að börn hafi orðið að vera í umhverfi sem er heilsuspillandi og séu orðin alvarlega veik út af myglu. Hvað á þetta að ganga lengi svona? Ég hef heyrt það áður að fara eigi að taka á þessu, ég einfaldlega held að Reykjavíkurborg ráði því miður ekki við þetta verkefni. Þegar búið er að eyða yfir 500 milljónum í viðgerðir á húsnæði líkt og gert hefur verið í Fossvogsskóla þá ætti árangurinn að vera allt annar en þessi. Það er algerlega óásættanlegt að hættulegar myglutegundir séu að finnast í skólanum eftir allan þennan tíma og alla þessa peninga sem farið hafa í endurbætur.

Reykjavíkurborg ræður ekki við verkefnið

Það ætti að vera orðið öllum ljóst að Reykjavíkurborg ræður ekki við þetta verkefni. Reykjavíkurborg hefur ekki náð að tryggja börnum og kennurum í Fossvogsskóla heilsusamlegt vinnuumhverfi. Barátta foreldra barna í Fossvogsskóla hefur tekið um þrjú ár og stendur enn. Það er dapurt að foreldrar þurfi að leiða þessa baráttu þegar skýrt er sagt á vefsíðu Reykjavíkurborgar hver ábyrgð skóla- og frístundaráð sé : „Gætir þess að leikskólar, grunnskólar, frístunda- og félagsmiðstöðvar og frístundaheimili á vegum borgarinnar búi við fullnægjandi húsnæði og að annar aðbúnaður sé fyrir hendi.“ Kennarar og börn búa ekki að fullnægjandi húsnæði í Fossvogsskóla, foreldrar hafa orðið að berjast fyrir því að húsnæðið sé rannsakað á viðunandi hátt, berjast fyrir sjálfsögðum réttindum barna sinna. Það er skýr skylda okkar sem sitjum í skóla- og frístundaráði að bregðast við þegar upp koma mál líkt og í Fossvogsskóla.

Hvaða áhrif hefur mygla á börn til framtíðar

Stóra spurningin núna er hins vegar hvaða áhrif mun þetta hafa til framtíðar á þau börn sem eru veik og munu önnur börn veikjast áður en búið er að taka á þessu. Þar sem skýrt er kveðið á um að það sé skylda borgarinnar að búa börnum og starfsfólki húsnæði sem er fullnægjandi hver er þá réttur þeirra barna og starfsmanna sem hafa verið í húsnæði sem hefur ekki verið heilsusamlegt? Er Reykjavíkurborg skaðabótaskyld gagnvart þeim sem hafa veikst?

Er myglu að finna í fleiri skólum

Tillaga Sjálfstæðisflokks um að greina ástandið í fleiri skólum af óháðum aðilum nær vonandi fram að ganga. Mikilvægt er að foreldrar barna sem dvelja í leik- og grunnskólum Reykjavíkurborgar verði upplýst um það hvort myglu sé að finna í húsnæði skólanna. Eins á að vera hægt að nálgast upplýsingar um úttektir er gerðar hafa verið á húsnæði leik- og grunnskóla á heimasíðum skólanna, þar geta foreldrar með auðveldum hætti lesið sér til um ástand þess húsnæðis sem börn þeirra dvelja í.

Greinin birtist á visir.is 19. febrúar 2021.