Mynd af althingi.is

Auglýst er eftir framboðum í prófkjöri í Suðurkjördæmi

Kjörnefnd Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi ákvað á fundi sínum um síðustu helgi að framboðsfrestur til þátttöku í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu standi til fimmtudags 8. apríl næstkomandi kl. 15:30. Prófkjörið fer fram laugardaginn 29. maí 2021.

Skal framboð vera bundið við flokksfélaga, enda liggi fyrir skriflegt samþykki um að viðkomandi gefi kost á sér. Auk þess þurfa að liggja fyrir skrifleg meðmæli 20-40 flokksfélaga sem búsettir eru í kjördæminu. Hver flokksfélagi má mæla með allt að 5 frambjóðendum.

Tekið er við framboðum á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins, Háaleitisbraut 1, Reykjavík og rafrænt (innskannað) á frambod@xd.is innan ofangreinds frests.

Eyðublöð fyrir framboð, skipulags- og prófkjörsreglur Sjálfstæðisflokksins auk nánari upplýsinga um prófkjörið er hægt að nálgast á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins og á heimasíðu flokksins hér.

F.h. kjörnefndar Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjödæmi,

Halldóra B. Jónsdóttir, formaður