Veik börn vandamál?

Valgerður Sigurðardóttir borgarfulltrúi:

Það er fyrir löngu orðið óásættanlegt að börn í Fossvogsskóla séu veik af því einu að dvelja í skólanum. Því miður er það er veruleiki sumra barna sem stunda nám við Fossvogsskóla. Nú er svo komið að foreldrar eru að gefast upp, þeirra eina lausn er að selja eigur sínar og flytja til þess að börn þeirra geti stundað nám í húsnæði sem ekki er heilsuspillandi. Þrátt fyrir það sem Reykjavíkurborg hefur gert þá eru börn enn veik.

Vandamálið er mygla í húsnæðinu

Það er sama á hvern er bent, hvorki nemendaverndarráð eða heilsugæslan getur leyst þetta mál. Því vandinn er ekki veik börn heldur húsnæðið. Reykjavíkurborg ein getur leyst þann mygluvanda sem er í Fossvogsskóla. Á vefsíðu Reykjavíkurborgar segir um skóla- og frístundaráð: „Gætir þess að leikskólar, grunnskólar, frístunda- og félagsmiðstöðvar og frístundaheimili á vegum borgarinnar búi við fullnægjandi húsnæði og að annar aðbúnaður sé fyrir hendi.“ Kennarar og börn búa ekki að fullnægjandi húsnæði í Fossvogsskóla, foreldrar hafa orðið að berjast fyrir því að húsnæðið sé rannsakað á viðunandi hátt, berjast fyrir sjálfsögðum réttindum barna sinna. Það er skýr skylda okkar sem sitjum í skóla- og frístundaráði að bregðast við þegar upp koma mál líkt og í Fossvogsskóla. Í september var gert samkomulag við foreldra um að ráðast í frekari þrif og sýnatökur. Foreldrar hafa ekkert fengið að vita eftir þær sýnatökur þrátt fyrir óskir um það. Það verður að vera meiri samvinna þegar jafn alvarlegt mál líkt og þetta kemur upp, það er ótækt að foreldrar fái ekki svör og veik börn geta ekki beðið.

Getur mygla haft meiri áhrif

Sú vitneskja að mygla hefur alvarleg áhrif á heilsufar okkar er sem betur fer tekin alvarlega. Orkuveituhúsið er gott dæmi um alvarleika þess þegar upp kemur mygla, þar kom upp mygla í húsnæði í eigu dótturfyrirtækis Reykjavíkurborgar og var hluti af húsnæðinu dæmdur ónýtur. Hvers vegna þegar mygla finnst í leik- og grunnskólum Reykjavíkur er ekki farin sama leið og gert var með Orkuveituhúsið?

Getur verið að hluti af þeim vanda sem er í skólakerfinu, lækkandi einkunnir ásamt fjölgandi greiningum geti verið út af því að húsnæðið sem börnin okkar eru í sé heilsuspillandi? Í það minnsta var betri árangur barna í Fossvogsskóla eftirtektarverður á samræmdu prófum þegar þau voru ekki lengur í gamla húsnæðinu þar sem fundist hafði mygla. Getur verið að mygla eigi stærri þátt í líðan barnanna okkar en við gerum okkur grein fyrir?

Greinin birtist á visir.is 6. febrúar 2021.