Hækkandi sól

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra:

Þarnæsta mánudag byrjar sólin að hækka á lofti. Það eru tímamót sem fela alltaf í sér ákveðna tilhlökkun og bjartsýni í hugum okkar sem búum við langa og dimma vetur. Að þessu sinni fara vetrarsólstöður saman við aukna bjartsýni um að nú fari senn einnig að birta til í því kófi heimsfaraldurs sem við höfum búið við undanfarna tíu mánuði eða svo.

Áfram land tækifæranna

Viðspyrnan mun að öllum líkindum verða fyrr en við höfum áætlað undanfarna mánuði. Það verður gefandi verkefni að koma Íslandi aftur í gang, eftir allt sem á undan er gengið. Krafturinn er þarna, þrautseigjan og seiglan. Vissulega munu margir koma skaddaðir frá þessari raun en vonandi tökum við með okkur lærdóm um hvað við sem samfélag þurfum að vera: Auðmjúk gagnvart því sem við höfum ekki stjórn á; þakklát fyrir öflugt velferðarkerfi sem við höfum komið upp og styrkt enn frekar; og þakklát öllu því fólki sem þar starfar; minnug þess að án öflugs einkaframtaks, öflugs atvinnulífs, berum við einfaldlega ekki uppi þau lífsgæði sem við viljum bjóða upp á. Úrræði stjórnvalda eru fjárfesting í öflugu samfélagi sem spyrnir hratt við botni og vex út úr kófinu. Ég er sannfærð um það. Og áfram verður Ísland land tækifæranna.

Efling nýfjárfestinga

Leiðarljós mitt í stjórnmálum er að stuðla að þessu; að Ísland sé land tækifæranna frá sjónarhóli bæði einstaklinga og fyrirtækja. Það eru forréttindi að fá að beita sér fyrir þessu.

Nýlegt dæmi um slíkt verkefni er rakið í minnisblaði sem ég lagði fram í ríkisstjórn síðastliðinn föstudag. Það gengur út á að efla stuðning við þá sem sýna áhuga á að ráðast í verðmætaskapandi nýfjárfestingarverkefni á Íslandi, einkum þau sem tengjast grænum fjárfestingum. Verkefnið hefur fengið vinnuheitið „Græni dregillinn“, sem vísar til þess að við viljum leita leiða til að greiða götu nýfjárfestingaverkefna allt frá hugmynd að rekstri með einfaldari og  skýrari ferlum. Allmörg verðmæta- og atvinnuskapandi tækifæri eru nú í skoðun víðsvegar um landið en fjárfestar hafa úr fleiri löndum að velja og leggja mikið upp úr samkeppnishæfu almennu viðskiptaumhverfi, markvissri þjónustu, fyrirsjáanleika og skýrum og einföldum ferlum. Íslandsstofa hefur í samvinnu við ráðuneyti mitt lagt drög að þessu verkefni og m.a. greint hvernig staðið er að þessum málum í nágrannalöndunum. Greiningin bendir til að nokkuð vanti upp á að við stöndum vel að vígi, sem getur hæglega leitt til þess að við missum af verðmætum tækifærum. Úr því þarf að bæta.

Það er raunar almennt áhyggjuefni hve við Íslendingar virðumst gjarnir á að flækja hlutina í hnútum regluverks og óskilvirkrar málsmeðferðar. Og það er dálítið einkennileg tilhneiging hjá þjóð sem oft er bendluð við kæruleysi, skjótar „reddingar“ og óþol gagnvart flækjum. OECD-skýrslan um byggingariðnað og ferðaþjónustu varpaði skýru ljósi á þessa „flækjuhlið“ á okkar ágæta samfélagi. Annað dæmi var rakið á fundi hjá Samorku nýlega, þar sem bent var á að ein og sama opinbera stofnunin getur þurft að koma allt að 10 sinnum að sömu framkvæmdinni á hinum ýmsu stigum leyfisveitinga og umsagna. Samorka, SI og SA hafa gert þessa áhugaverðu greiningu aðgengilega og er full ástæða til að hvetja áhugafólk um skilvirkt regluverk til að kynna sér hana.

En aftur að umbótum á þessu sviði: Í því sambandi má nefnilega líka nefna mikilvægt frumvarp sem fjármála- og efnahagsráðherra hyggst leggja fram um eflingu nýfjárfestinga. Þar er í fyrsta lagi um að heimild til að hraða afskriftum, sem þýðir að skattgreiðslur lækka á fyrstu árunum eftir fjárfestingu. Í öðru lagi er um að ræða sérstaka ívilnun til að styðja við umhverfisvænar fjárfestingar, sem felur í sér heimild til að reikna 15% fyrnanlegt álag ofan á kaupverð grænna eigna, sem styður enn frekar við slíkar fjárfestingar.

Jólakúlujól

Eftir bankahrunið 2008 gaf Baggalútur út jólalagið „Það koma vonandi jól“. Það var gráglettni sem á ekki síður við í dag. Þó að jólin séu að miklu leyti hugarástand sem við getum ræktað innra með okkur þá eru þau líka tími samveru með fjölskyldu og vinum. Samveran verður af skornum skammti að þessu sinni. Hugtakið „jólakúla“ hefur fengið nýja og óvænta merkingu. Nú reynir á okkur að njóta hátíðanna við þessar óvenjulegu aðstæður, hvert í sinni kúlu. En sú tilhugsun ætti að létta okkur þessa „kúluhátíð“ að nú hillir undir bjartari tíma.

Þar sem þetta er síðasta grein mín á þessum vettvangi fyrir jól vil ég nota tækifærið og óska lesendum öllum gleðilegrar hátíðar með von um að hún verði ykkur friðsæl og endurnærandi.

Greinin birtist fyrst í sunnudagsblaði Morgunblaðsins 13. desember 2020.