Fyrsta matvælastefnan fyrir Ísland kynnt 
'}}

Hornsteinn Matvælastefnu fyrir Ísland er sérstaða landsins þegar kemur að matvælaframleiðslu. Hún er óumdeild og henni eigum við að hampa í hvívetna. Tækifæri í íslenskri matvælaframleiðslu eru allt umlykjandi. Eftirspurnin eftir hreinni og heilnæmri vöru eykst sífellt og við erum vel í stakk búin til að svara þeirri eftirspurn. Markmið okkar er að tryggja samfellda hagsæld með aukinni verðmætasköpun,“ segir Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra sem í dag ásamt forsætisráðherra og Völu Pálsdóttur, formanns verkefnastjórnar, kynnti nýja matvælastefnu fyrir Ísland til næstu tíu ára ásamt aðgerðaráætlun til næstu 5 ára.

Í stefnunni er fjallað um tækifæri og áskoranir íslenskrar matvælaframleiðslu til næstu tíu ára. Fjallað er um mikilvægi aðgengis að hollum mat til að tryggja lýðheilsu til framtíðar og áskoranir sem þarf að mæta til að tryggja fæðuöryggi landsmanna. Þá er fjallað um möguleika til að styrkja samkeppnishæfni og verðmætasköpun íslenskra framleiðenda, ekki síst með nýsköpun og rannsóknum. Jafnframt um nauðsyn þess að matvælaframleiðsla styðji við loftslagsmarkmið og mikilvægi sjálfbærrar nýtingar auðlinda landsins. Þá er fjallað um þróun á neyslumynstrum fólks og tækifærin til að bregðast við breyttum kröfum neytenda um gagnsæi og aukið aðgengi að upplýsingum.

Matvælastefna fyrir Ísland er mótuð með aðkomu ólíkra aðila sem hafa mikla og breiða þekkingu á málaflokknum, hagsmunaaðila og samtaka þeirra.

Í verkefnisstjórn um mótun matvælastefnu fyrir Ísland sátu eftirfarandi aðilar:

Vala Pálsdóttir, formaður, skipuð án tilnefningar, Ingi Björn Sigurðsson, skipaður án tilnefningar, Gunnar Sigurðarson, tilnefndur af Samtökum iðnaðarins, Anna Guðmundsdóttir, tilnefnd af Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi, Sigurður Eyþórsson, tilnefndur af Bændasamtökum Íslands, Gunnar Egill Sigurðsson, tilnefndur af Samtökum verslunar og þjónustu, Þuríður Hjartardóttir, tilnefnd af Neytendasamtökunum, Jakob Einar Jakobsson, tilnefndur af Samtökum ferðaþjónustunnar, Kári Gautason, skipaður án tilnefningar, Rakel Garðarsdóttir, skipuð án tilnefningar og Þórarinn H. Ævarsson, skipaður án tilnefningar. Einnig sátu í verkefnisstjórninni þau Hrönn Ólína Jörundsdóttir og Arnljótur Bjarki Bergsson fyrir hönd Matís, Ragnheiður Héðinsdóttir frá Samtökum iðnaðarins og Brynja Laxdal frá Matarauði. Þá starfaði María Guðjónsdóttir með verkefnisstjórninni.

Matvælastefnuna má finna hér.

Aðgerðaáætlunina má finna hér.

Vefsíða stefnunnar er: www.matvælastefna.is