Vísindasamfélagið

Brynjar Níelsson alþingismaður:

Margir sækja sér huggun og styrk í því að skoðanir þeirra á skipulagi samfélagsins séu byggðar á vísindum. Þeir eru mjög áberandi í seinni tíð og hafa svo til tekið yfir umræðuna á samfélagsmiðlum, ekki síst þeim ágæta miðli Tvitter. Ég leyfði mér þá ósvinnu að efast um réttmæti og skynsemi aðgerða yfirvalda í glímunni við þennan veirufjanda sem herjar á heimsbyggðina. Það var við manninn mælt að fólkið, sem gjarnan kennir sig við frjálslyndi, brást hið versta við og ég sakaður um að afneita vísindum. Menn með svona hættulegar skoðanir eru auðvitað bæði holdsveikir og geislavirkir og eins og alltaf er útskúfun besta ráðið. Þegar frjálsri hugsun er úthýst verða vísindin sjálf og þekkingin fyrstu fórnarlömbin.

Kannski er rétt sem Ronald Reagan sagði einu sinni að fasistar framtíðarinnar kæmu fram undir nafni frjálslyndis. Vandi þeirra er að vísindum er ekki ætlað að skipuleggja samfélagið. Vísindunum er fremur ætlað að lýsa náttúrunni og samfélaginu og spá fyrir um gang þeirra með beitingu gagnrýninnar hugsunar óháð öllu boðvaldi. Engin gild eða óhrekjanleg vísindi eru til sem slá föstu í eitt skipti fyrir öll hvernig er best að stýra samfélaginu. Churchill hitti þó naglann á höfuðið þegar hann sagði að lýðræðið væri versta stjórnarfyrirkomulagið fyrir utan öll önnur sem hefðu verið reynd.

Tækniræði eða vísindaræði hefur verið reynt. Í ráðstjórnarríkjunum reiknuðu vísindamenn t.d. nákvæmlega út hversu mikinn hárþvottalög þyrfti að framleiða, allt út frá hárfínum vísindalegum forsendum um fjölda fólks og rétt metnar þarfir þess fyrir hárþvott. Hið rétta magn var svo framleitt í stórri verksmiðju til að hámarka hagkvæmni. Þetta hljómaði vel í hugum þeirra vísindamanna sem reiknuðu og þróuðu þessar kenningar og ráðamanna sem hrintu þeim í framkvæmd með valdi. Frá sjónarhóli fólksins sem sat eftir í alræðisríki illa lyktandi og með skítugt hárið var þetta síður spennandi.

Ef sú krafa er komin upp í íslenskum stjórnmálum að samfélaginu verði stýrt með vísindum ættu forvígismenn þeirra kenninga að byrja á að svara hvort þeir vilji ekki berjast fyrir brautargengi vísindakenninga um haganlegustu stjórn fiskveiða. Mér segir svo hugur að fáir verði til þessa enda eru þeir sem vilja stjórna samkvæmt vísindum oft aðeins að dulbúa ráðstjórnarkenndir sínar með handvöldum vísindalegum tilgátum.

Kannski er stærsti vandinn að við höfum engan Winston Churchill eða Ronald Reagan lengur eða aðra sem hafa tilfinningu fyrir eðli mannsins og samfélagi hans. Nú sitjum við uppi með stjórnmálamenn sem halda að lífskjör okkar og velferð sé bara ákveðin á þingi eða í stjórnarráðinu með einu pennastriki. Jafnvel að peningarnir verði til í sérhannaðri skúffu hjá Bjarna Ben og maturinn verði til í Bónus.

Greinin biritst á visir.is 13. nóvember 2020.