Landsfundi frestað

Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins ákvað á fundi sínum hinn 21. september að fresta landsfundi til næsta árs. Fundinn átti að halda dagana 13.-15. nóvember n.k. Honum er frestað í ljósi COVID-19 faraldursins enda eru landsfundir talsvert stærri en núverandi fjöldatakmarkanir upp á 200 manns bjóða upp á. Nánari dagsetning verður ákveðin og auglýst síðar en stefnt er að því að fundurinn verði haldinn á bilinu febrúar – apríl 2021.