Opið fyrir umsóknir í matvælasjóð í fyrsta sinn

„Það er stundum sagt að við þurfum að framleiða okkur út úr núverandi ástandi – að það sé lykilatriði í þeirri viðspyrnu sem nú tekur við að við sköpum meiri verðmæti. Það er hárrétt enda erum við Íslendingar matvælaþjóð. Byggjum afkomu okkar öfluga samfélags að stórum hluta á því að nýta auðlindir okkar með sjálfbærum hætti, bæði til sjós og lands. Þessi áhersla og uppruni okkar er einmitt kjarnahlutverk Matvælasjóðs – að styrkja verðmætasköpun við framleiðslu, vinnslu og markaðssetningu matvæla um allt land. Að leggja sérstaka áherslu á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og almennar aðgerðir til að bæta samkeppnishæfni íslenskrar matvælaframleiðslu. Því er stofnun Matvælasjóðs ekki bara skref í rétt átt – heldur ein forsenda þeirrar sóknar sem fram undan er í íslenskri matvælaframleiðslu,“ segir Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra sem í dag opnaði formlega fyrir umsóknir í nýjan Matvælasjóð.

Alls verður um 500 milljónum króna úthlutað á þessu ári. Hlutverk sjóðsins að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla úr landbúnaðar- og sjávarafurðum.

Matvælasjóður hefur fjórar deildir:

Kelda styrkir rannsóknaverkefni sem miða að því að skapa nýja þekkingu.

Afurð styrkir verkefni sem komin eru af hugmyndastigi en eru þó ekki tilbúin til markaðssetningar, en leiða af sér afurð.

Bára styrkir verkefni á hugmyndastigi. Styrkur úr Báru fleytir hugmynd yfir í verkefni.

Fjársjóður styrkir sókn á markað. Fjársjóður er samansafn verðmætra hluta og styrkir fyrirtæki til að koma sínum verðmætum á framfæri.

Sjá nánar í frétt á vef atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.