Reykjavíkurborg óskar eftir neyðaraðstoð

Valgerður Sigurðardóttir borgarfulltrúi:

Fjárhagsstaða Reykjavíkurborgar er grafalvarleg, útgjöld borgarinnar halda áfram að vaxa og skuldasöfnun hefur aukist um 33 milljarða á aðeins sex mánuðum. Heildarskuldir og skuldbindingar samstæðna borgarinnar eru komnar í 378 milljarða í júnílok. Það sjá það allir að vandinn er gríðarlegur og hann varð ekki til á nokkrum mánuðum. Vissulega hefur COVID áhrif á stöðuna en því miður var Reykjavíkurborg það illa rekið sveitarfélag fyrir COVID að búið var að senda ósk um neyðaraðstoð til ríkisins strax á vordögum. Enda augljóst að fjárhagsleg óstjórn hefur verið í sveitarfélaginu um langt skeið. Ríkið nýtti uppsveiflu síðustu ára til að greiða skuldir verulega niður, en á sama tíma hefur borgin aukið skuldir sínar um meira en milljarð á mánuði þrátt fyrir einstakt góðæri. Nú eru liðin tvö ár frá því að Viðreisn komst í meiri­hluta með vinstri flokk­un­um í borg­inni. Þá var gerður sátt­máli um að greiða niður skuld­ir á meðan efna­hags­ástandið væri gott en á það lögðu full­trú­ar Viðreisn­ar þunga áherslu. Það hef­ur gjör­sam­lega brugðist.

 Algerlega ósjálfbær rekstur til margra ára

Reykjavíkurborg skýrir stöðu sína best út sjálf í umsögn sem borgin sendi frá sér í vor til Alþingis vegna aðgerða ríkisstjórnarinnar og áhrifa COVID-19. Þar óskaði Reykjavíkurborg eftir tugum milljarða bæði frá ríkinu og Seðlabanka Íslands. Niðurstöður starfshóps á vegum Reykjavíkurborgar fylgja umsögninni og þar segir meðal annars: „Vandinn snýst hins vegar ekki aðeins um skammtíma fjármögnunarvanda heldur stefnir í algerlega ósjálfbæran rekstur til margra ára. Þessa ósjálfbærni er ekki hægt að leysa með hækkun leyfilegrar skattlagningar eða þjónustugjalda eða með stórfelldum niðurskurði í útgjöldum borgarinnar sem varða að langmestu leyti leik- og grunnskóla og velferðarþjónustu. Hefðbundnar aðferðir eru ekki í boði. Þá er ekki hægt að leysa þetta með stórfelldum lánveitingum þar sem veltufé frá rekstri mun ekki til margra ára fram undan standa undir afborgunum.“ Ekki er hægt að hækka skatta og gjöld sem nú þegar eru í botni. Fjárhagsstaða borgarinnar getur ekki verið skýrð út betur, því miður.

Niðurskurður hjá börnum

Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokks hefur allt frá kosningum verið að benda á það að fjárhagsstaða borgarinnar sé ekki ásættanleg. Því hefur ávalt verið haldið fram af meirihlutanum að allt sé í himnalagi og öllum ábendingum okkar um slaka rekstrarstöðu hefur verið slegið út af borðinu. Meirihlutinn hefur samt byrjað að spara og það hjá börnum með því að loka grunnskóla. Á tímum þessa meirihluta þar sem borginn er að eigin sögn að stefna í algerlega ósjálfbæran rekstur er byrjað á því að skera niður í grunnþjónustunni sem hefur ekki frá hruni fengið það bætt sem þá var skorið niður.

Það er ljóst að næstu mánuðir verða erfiðir fyrir meirihlutann í Reykjavík þar sem komið er að skuldadögum eftir margra ára skuldasöfnun.

 Greinin birtist í Morgunblaðinu 29. ágúst 2020.