Þeir sem búa til kerfið – svar til Diljár Ámundadóttur Zoega

Valgerður Sigurðardóttir skrifar:

Einhverfum börnum hefur verið synjað um skólavist í Arnarskóla, synja einhverfum börnum um það úrræði er talið af sérfræðiteymum þessara barna muni henta þeim best. Í bréfi til foreldra frá Reykjavíkurborg var skýring á þessu sú að ytra mat á skólanum vantaði. Þegar borið var upp á borgina að þarna væri verið að brjóta jafnræðisregluna þá kemur ný skýring á þessari synjun. Sú skýring kom fram í grein sem Diljá Ámundadóttir Zoega skrifaði hér á visi.is

Ekki okkur að kenna

Það að segja að þetta sé vegna þess að fé vanti frá jöfnunarsjóði sveitarfélaga er eftirá skýring og sú númer tvö í röðinni, sú fyrri var það að ekki væri komið ytra mat á skólanum. Þegar skýringin um ytra mat var sögð brjóta jafnræðisregluna þá er þessu skellt á jöfnunarsjóð. Stærsta sveitarfélag landsins er að mismuna fötluðum börnum vegna skorts á fjármunum. Borgarstjóra finnst hugmyndin um bátastrætó of góð til þess að prófa hana ekki. En einhverf börn fá ekki þá þjónustu sem er best fyrir þau vegna þess að jöfnunarsjóður sveitarfélaga er ekki að standa sig í því að dæla peningum í borgarsjóð. Það er aum höfuðborg sem mismunar fötluðum börnum, aumar eftirá skýringar sem ekki standast lög. Því hér er verið að mismuna ekki bara vegna fjármuna heldur er verið að brjóta jafnræðisregluna.

Foreldrar hafa kært

Því hafa foreldrarnir kært þessa ákvörðun. Ég er algerlega sammála því sem kom fram í grein Diljár þar sem hún segir „Við eigum ekki að þurfa að búa í samfélagi þar sem foreldrar fatlaðra og langveikra barna þurfa ítrekað að koma fram í fjölmiðlum til að lýsa neikvæðum upplifum sínum við kerfið.“ Það er samt raunveruleikinn á því kerfi sem Viðreisn er að viðhalda, kerfið er ekkert annað en ákvarðanir þeirra sem stjórna og í þessu tilfelli er Viðreisn í meirihlutanum. Diljá situr í Skóla- og frístundaráði og það ættu því að vera hæg heimatökin að breyta kerfinu. Það hefur þó ekki gerst og hefur Reykjavíkurborg fengið á sig enn eina kæruna, núna vegna þess að þau hafa búið til kerfi sem er ekki fyrir fólkið. Öll kerfi eru mannanna verk í þessu tilfelli verk meirihlutans í Reykjavík og það er þeirra að breyta kerfinu. Það hefur ekki verið gert þrátt fyrir óskir um slíkt og ábyrgðinni varpað á jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Kæri meirihluti kerfið er ykkar, þið eruð að valda því að foreldrar fatlaðs barns hafa kært ykkar kerfi, þau hafa orðið að segja frá sinni baráttu opinberlega í þeirri veiku von að þið hlustið, ekki til þess að finna einhverja aðra til þess að varpa sökinni á. Hlustið og breytið kerfinu þannig að það sé ekki að mismuna fötluðum börnum.

Greinin birtist upphaflega á visir.is þann 11. júní 2019.