Efla íslenska matarmenningu og keppnismatreiðslu

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, undirritaði í dag samning við Klúbb matreiðslumeistara og Íslensku Bocuse d´Or Akademíuna sem tryggir veglegt framlag atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins til keppnismatreiðslu.

Samningurinn er sá fyrsti sinnar tegundar og er samningsfjárhæð samtals 40 milljónir króna á tveggja ára tímabili. Klúbbi matreiðslumeistara og Íslensku Bocuse d‘Or Akademíunni er falið að vinna að því að kynna íslenskt hráefni á erlendri grund og styrkja ímynd Íslands sem mataráfangastaðar.

Íslenskir matreiðslumeistarar hafa verið óþreytandi í að kynna gæði íslensks hráefnis á erlendri grundu og hafa verið í fremstu röð í keppnismatreiðslu. Það er tímabært að styðja vel við bakið á þeim og með þessum samningi verður hægt að lyfta íslenskri keppnismatreiðslu og renna enn betri stoðum undir íslenska matarmenningu. Það er einnig mikilvægt að skapa fyrirmyndir og gera fagið eftirsóknarvert fyrir ungt fólk, stuðla að framþróun og nýsköpun,“ sagði Kristján Þór við undirritunina í dag.

Styrkhafar munu einnig vinna að því að efla vöruþróun, nýsköpun og fagþekkingu í matvælagreinum. Klúbbur matreiðslumanna og Bocuse d´Or Akademían taka þátt í alþjóðlegum matreiðslukeppnum fyrir hönd Íslands og mun styrkurinn standa straum af þeim kostnaði og er keppendum falið að vekja athygli á íslensku hráefni.

Friðgeir Ingi Eiríksson, formaður Klúbbs matreiðslumeistara sagði þetta stóran áfanga fyrir íslenska keppnismatreiðslu. „Þetta mun skapa betra starfsumhverfi fyrir hana, íslenska kokkalandsliðið og Íslensku Bocuse d´Or Akademíuna. Með samningnum er keppnismatreiðslu gefið aukið vægi sem mun skila sér í enn betri kynningu á íslenskum hráefnum og efla matarmenningu hérlendis.“