Skref í afléttingu ferðatakmarkana

Ríkisstjórnin ákvað í morgun að stefna að því að eigi síðar en 15. júní næstkomandi geti þeir sem koma til landsins farið í COVID-19 próf á Keflavíkurflugvelli. Reynist það neikvætt þurfi þeir ekki að fara í 2ja vikna sóttkví. Þá er gert ráð fyrir að nýleg vottorð um sýnatöku erlendis verði einnig tekin til greina meti sóttvarnalæknir þau áreiðanleg. Þessi tímasetning er með fyrirvara um að áætlanir um afléttingu takmarkana innanlands gangi eftir og með hliðsjón af þróun faraldursins hérlendis og erlendis. Þetta kom fram á blaðamannafundi í Þjóðmenningarhúsinu í dag.

Fyrirhugað er að veirufræðideild Landspítala annist sýnatöku á Keflavíkurflugvelli og greiningu. Niðurstaða á að geta legið fyrir samdægurs og er gert ráð fyrir að farþegar geti farið til síns heima eða á gististað uns hún liggur fyrir.

Ef skimun á Keflavíkurflugvelli reynist vel þarf einnig að huga að fyrirkomulagi á öðrum landamærastöðvum.

Frétt á vef Stjórnarráðsins – sjá hér.