Kristján Þór

Afladagbókum verður skilað rafrænt

„Með því að taka upp rafræna aflaskráningu erum við að nýta tæknina til að einfalda skil á þessum upplýsingum en jafnframt að auka skilvirkni í samskiptum einstaklinga og fyrirtækja við stjórnvöld,“ segir Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um nýja reglugerð sem var undirrituð í dag þess efnis að frá og með næstu fiskveiðiáramótum verði skil á afladagbókum með rafrænum hætti. Þetta kemur fram í frétt atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins.

„Eftir þessa breytingu verður engin þörf á því að handskrá þessar upplýsingar á pappír og senda til stofnanna, heldur verður þetta nú allt framkvæmt í gegnum rafræna afladagbók eða sérstakt smáforrit. Hér er um mikið gæfuspor að ræða fyrir alla aðila,“ sagði ráðherra.

Með breytingunum verða allar skráningar rafrænar en óbreyttar eru reglur um það hvað skal skrá. Útgerðir bera ábyrgð á skilum og skal aflaskráningu og skilum með rafrænum hætti vera lokið áður en lagst er að bryggju að lokinni veiðiferð. Þetta gildir einnig fyrir rafræna afladagbók en áður höfðu menn allt að sex vikur til að skila henni eftir í land var komið.

Sjá nánar í frétt ráðuneytisins hér.