Eins neysla er annars brauð

Áslaug Hulda Jónsdóttir formaður bæjarráðs Garðabæjar:

Þegar áföll verða í samfélaginu og árferðið erfitt, vegur sterk fjárhagsstaða sveitarfélags þungt því aldrei er meiri nauðsyn á góðri nærþjónustu.

Þegar þetta er skrifað hafa 240 Íslendingar greinst með COVID-19 og 2500 manns eru ýmist í sóttkví eða einangrun í því skyni að hindra útbreiðslu þessarar vár sem hefur nú þegar lamað samfélagskerfi margra þjóða.

Forystufólk okkar hefur staðið sig vel. Framlínuteymi almannavarna, sóttvarnarlæknir, landlæknir og lögregla una sér ekki hvíldar og áherslan hefur verið að vernda þá sem eru viðkvæmastir fyrir og fá almenning með í þær aðgerðir. Við höfum öll gert það sem við getum. Þá hefur ríkisstjórnin boðað aðgerðir sem skipta miklu máli og áhersla okkar á sveitarstjórnarstiginu hefur verið að tryggja grunnþjónustu fyrir þá sem þurfa aðstoð ásamt því að skipuleggja mikilvægt starf leik- og grunnskóla.

Þróttmikið atvinnulíf er forsenda velferðar og þróun launa og kaupmáttar byggist á vexti og viðgangi þess. Ef hægir á hjólum atvinnulífsins, til dæmis með því að eftirspurn eftir vörum og þjónustu minnkar mjög skarpt, fækkar störfum og það viljum við koma í veg fyrir. Hvernig gerum við það þegar vá er fyrir dyrum og við hættum okkur helst ekki út fyrir hússins dyr?

Við höfum verið dugleg að fara að fyrirmælum síðustu daga, þvegið hendur og sótthreinsað, gætt að fjarlægð á milli fólks og fylgt samkomubanni. Þessum fyrirmælum hefur líka fylgt mikilvæg hvatning, hvatning til að halda áfram. Og á meðan við getum eigum við ekki að hætta að gera venjulega hluti og njóta þess að vera til. Það skiptir máli að við gerum ekki hlé á lífinu, við eigum að fara út að borða, kíkja aðeins í verslanir og kaupa nauðsynjar og jafnvel sitthvað fleira. Ef ferðalög til útlanda verða áfram háð miklum takmörkunum, er ekkert því til fyrirstöðu að ferðast innanlands og njóta heima.

Hegðun okkar og neysla hefur áhrif á samfélagið, atvinnulífið og störfin í landinu. Í sinni einföldustu mynd er þetta svona: Við kaupum hluti sem okkur vantar og langar í og í staðinn látum við fólkið, sem bjó þá til og selur, fá peninga sem það notar svo til að kaupa hluti sem það vantar og langar í og svo endalaust framvegis.

Stíflum ekki þetta kerfi með því að skríða inn í skel. Garðabær er vel í sveit settur og mun ekki draga lappirnar í þessum efnum frekar en öðrum og mun halda áfram að kaupa og veita þjónustu hér eftir sem hingað til.

Greinin birtist í visir.is 18. mars 2020.