Isavia fellir niður notendagjöld á Keflavíkurflugvelli

„Með ákvörðun sinni leggur Isavia sitt lóð á vogarskálarnar með stjórnvöldum til að styðja við íslenska ferðaþjónustu á krefjandi tímum. Mikilvægt er að viðhalda öflugri flugstarfsemi sem er lykilþáttur í íslenskri ferðaþjónustu og efnahagslífi,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir varaformaður Sjálfstæðisflokksins og ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um þá ákvörðun ISAVIA að fella niður tímabundið notendagjöld á Keflavíkurflugvelli.

Félagið tilkynnti ráðherra þessa ákvörðun í dag.

Með þessu styður félagið við viðskiptavini sína á fordæmalausum óvissutímum með það að markmiði að auðvelda flugfélögum að taka ákvarðanir um áframhaldandi flug til Íslands þrátt fyrir lakari sætanýtingu. Samkvæmt upplýsingum frá félaginu gildir þessi ákvörðun á meðan að núverandi ferðabann borgara innan Schengen svæðisins til Bandaríkjanna varir, segir í tilkynningu frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.