Hvað finnst þér um Elliðaárdalinn

Valgerður Sigurðardóttir borgarfulltrúi:

Meirihlutinn í Reykjavík hefur núna veitt leyfi fyrir því að byggja í Elliðaárdalnum. Gríðarleg óánægja er með þessa ákvörðun og hefur verið hrundið af stað undirskriftasöfnun til þess að skora á meirihlutann í Reykjavíkurborg að verða af þessum hugmyndum. Ég vill hvetja ykkur öll sem viljið skrifa undir að gera það með því að fara í Mörkina 4, þar er opið alla daga frá kl 16 til 18, einnig geta þeir sem eiga rafræn skilríki skrifað undir á netinu. Þið finnið slóðina og allar upplýsingar inn á fésbókarsíðu sem heitir Vinir Elliðaárdalsins. Mikilvægt er að skrifa undir fyrir 28. febrúar.

Þessar kosningar gefa okkur tækifæri til að segja okkar skoðun á uppbyggingu á grænu svæði í borgarlandinu. Við ættum síðan að spyrja okkur hvort að það sé hlutverk þeirra sem stjórna núna að taka jafn afdrifaríka og óafturkræfa ákvörðun. Fyrir mitt leiti þá segi ég nei og hef tekið þátt í undirskriftasöfnunni. Ég vil að börnin mín hafi aðgang að svæði inni í miðri borg þar sem þau geta komist í ósnortna náttúru líkt og ég hef fengið.

Mun þetta kosta skattgreiðendur eitthvað?

Til þess að byggja á þessu svæði í Elliðaárdalnum þá þarf að ráðast í kostnaðarsamar framkvæmdir. Það þarf að breyta lögnum og sá kostnaður mun leggjast á skattgreiðendur Reykjavíkurborgar. Þetta er kostnaður upp á um 500 til 800 milljónir sem við Reykvískir skattgreiðendur munum greiða til þess að byggt verði í Elliðaárdalnum. Kostnaðartölurnar eru mismunandi eftir því hvað skýrsla er lesin.

Hvað segir reykjavík.is

Það er áhugavert að skoða á vefsíðu Reykjavíkurborgar reykjavik.is/stadir/ellidaardalur  þær upplýsingar sem þar eru um Elliðaárdalinn. Allt er satt og rétt sem kemur þar fram og því er það óskiljanlegt að meirihlutinn í Reykjavík vilji hrófla við dalnum. Þar er sagt „Elliðaárdalurinn er eitt stærsta græna svæðið innan þéttbýliskjarna Reykjavíkur. Dalurinn einkennist af fjölbreyttu umhverfi, landslagi og gróðurfari en þungamiðjan eru Elliðaárnar sem dalurinn er kenndur við. Jarðfræði Elliðaárdals er fjölbreytt enda um stórt svæði að ræða. Berggrunnur Elliðaárdals einkennist af grágrýti sem á rætur að rekja til eldsumbrota á hlýskeiðum síðustu ísaldar. Víða má finna setlög frá lokum ísaldar, einkum strandseti frá tímum hærri sjávarstöðu. Neðarlega í dalnum má sjá stóra strandhjalla. Leitahraun er 4.500 ára gamalt hraun sem mótar mjög landslag Elliðaárdals. Þá hafa Elliðaárnar rofið hraunið og fellur í fallegum fossum um miðjan og neðanverðan dalinn. Hátt í 320 tegundir háplantna hafa fundist í dalnum. Fuglalíf í Elliðaárdal er afar fjölbreytt og fá svæði í Reykjavík búa yfir jafn miklum fjölda fuglategunda en alls hafa um 25 tegundir verpt í dalnum. Elliðaárnar eru laxveiðiá og mikilvæg hrygningarstöð fyrir íslenska laxinn“.

Við þurfum græn svæði

Það er fátt mikilvægara í borgum en græn svæði, þau veita okkur íbúunum ómælda gleði og lífsfyllingu. Ég vil að komandi kynslóðir geti áfram notið þess sem Elliðaárdalurinn hefur upp á að bjóða og því er mikilvægt að við stöndum saman og skrifum undir. Það er barist víða fyrir því að vernda græn svæði og þessi barátta er mjög mikilvæg og með öllu óskiljanlegt að þurfa að standa í því að verja svæði líkt og Elliðaárdal fyrir ágangi meirihlutans í Reykjavík.

Greinin birtist í Árbæjar-, Grafarvogs- og Breiðholtsblaðinu.