Loftslagsráð Sjálfstæðisflokksins skipað

Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins hefur sett á stofn Loftslagsráð Sjálfstæðisflokksins að tillögu Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, Jóns Gunnarssonar og Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur.

Auknar áherslur eru á loftslagsmál hérlendis og á heimsvísu og þau snerta flesta málaflokka. Því var talið rétt að skipa ráð sem starfaði þvert á málefnanefndir flokksins, en þær eru átta að tölu og endurspegla málefnastarf Alþingis.

Loftslagsráð er skipað breiðum hópi fólks úr atvinnulífi, sveitarstjórnum, SUS og úr þingflokki Sjálfstæðisflokksins. Loftslagsráði er ætlað að fjalla um málaflokkinn þvert á málefnanefndir og að beina eftir atvikum tillögum til málefnanefnda, miðstjórnar Sjálfstæðisflokksins og til landsfundar. Skipunartími ráðsins er eitt ár.

Eftirtaldir aðilar voru skipaðir í ráðið:

Áslaug Hulda Jónsdóttir, Davíð Þorláksson, Guðfinnur Sigurvinsson, Gunnlaug Helga Ásgeirsdóttir, Haraldur Benediktsson, Hildur Björnsdóttir, Hugrún Elvarsdóttir, Kristinn Árni Lár Hróbjartsson, Kristján Þór Magnússon og Unnur Brá Konráðsdóttir.