Landsfundur 13. – 15. nóvember 2020

Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins hefur ákveðið að 44. landsfundur Sjálfstæðisflokksins verði haldinn dagana 13. – 15. nóvember 2020 í Laugardalshöll.

Landsfundur fer með æðsta vald í málefnum Sjálfstæðisflokksins og þar er stefna hans mótuð af um tólfhundruð fulltrúum. Hann er stærsta reglulega stjórnmálasamkoma á Íslandi og störf hans hafa mikil áhrif, bæði inn í stjórnmálin en einnig út á við til þjóðarinnar.

Síðasti landsfundur Sjálfstæðisflokksins fór fram í mars 2018.