Gauti leiðir D-listann í nýju sveitarfélagi á Austurlandi

Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna á Seyðisfirði, Djúpavogi, Fljótsdalshéraði og Borgarfirði eystri samþykkti einróma tillögu uppstillingarnefndar á fundi sínum á Seyðisfirði sunnudaginn 9. febrúar sl. að framboðslista Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar í sameinuðu sveitarfélagi.

Eftirtaldir einstaklingar skipa listann:

  1. Gauti Jóhannesson, sveitastjóri og fyrrverandi skólastjóri, Djúpavogi
  2. Berglind Harpa Svavarsdóttir, hjúkrunarfræðingur og MS í heilbrigðisvísindum og bæjarfulltrúi, Fljótsdalshéraði
  3. Elvar Snær Kristjánsson, verktaki og bæjarfulltrúi, Seyðisfirði
  4. Jakob Sigurðsson, oddviti og bifreiðarstjóri, Borgarfirði eystri
  5. Guðný Margrét Hjaltadóttir, skrifstofustjóri, Fljótsdalshéraði
  6. Oddný Björk Daníelsdóttir, rekstrarstjóri og bæjarfulltrúi, Seyðisfirði
  7. Sigurður Gunnarsson, viðskiptafræðingur, Fljótsdalshéraði
  8. Sigrún Hólm Þórleifsdóttir, viðskiptafræðingur, Fljótsdalshéraði
  9. Ívar Karl Hafliðason, umhverfis- og orkufræðingur, Fljótsdalshéraði
  10. Gunnar Jónsson, bóndi og bæjarfulltrúi, Fljótsdalshéraði
  11. Svava Lárusdóttir, grunnskólakennari, Seyðisfirði
  12. Skúli Vignisson, framkvæmdastjóri, Seyðisfirði
  13. Ragnar Kristjánsson, háskólanemi, Djúpavogi
  14. Davíð Þór Sigurðarson, svæðisstjóri, Fljótsdalshéraði
  15. Ágústa Björnsdóttir, rekstrarráðgjafi, Fljótsdalshéraði
  16. Sylvía Ösp Jónsdóttir, leiðbeinandi í leik- og grunnskóla, Borgarfirði eystri
  17. Sigfríð Hallgrímsdóttir, aðstoðarhótelstjóri, Seyðisfirði
  18. Sigríður Sigmundsdóttir, matreiðslumaður, Fljótsdalshéraði
  19. Karl Lauritzson, viðskiptafræðingur, Fljótsdalshéraði
  20. Sóley Dögg Birgisdóttir, skrifstofustjóri, Djúpavogi
  21. Sigvaldi H. Ragnarsson, bóndi, Fljótsdalshéraði
  22. Anna Alexandersdóttir, verkefnisstjóri og formaður bæjarráðs, Fljótsdalshéraði

Gauti Jóhannesson oddviti listans þakkaði uppstillingarnefnd og fundarmönnum fyrir hönd frambjóðenda það traust sem þeim er sýnt og þann einróma stuðning sem tillaga nefndarinnar fékk á fundinum. „Það eru ótal sóknarfæri við sjóndeildarhringinn fyrir nýtt sameinað sveitarfélag. Nýrrar sveitarstjórnar er að stuðla að því að þau nýtist. Við þurfum einnig að tryggja farsæla sameiningu. Það eru engir betur til þess fallnir en Sjálfstæðisfólk að leiða starf nýrrar sveitarstjórnar  – nú er bara að bretta upp ermarnar.“ sagði Gauti.