Ökuskírteini í símann

Í vor verður hægt að fá ökuskírteini í símann en stefnt er að því að koma stafrænum ökuskírteinum í gagnið fyrir 1. júní 2020. Frá þessu greinir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra á Instagram-reikningi sínum.

Fjölmargir nota nú símann sem greiðslukort, flugmiða o.s.fr.v. Stafræn ökuskírteini verða til hagsbóta fyrir fólk enda síminn oftast með í för og líkur á að þessu fylgi töluverð þægindi fyrir einstaklinga.

Stafrænt Ísland hefur á síðustu mánuðum unnið að útgáfu stafrænna ökuskírteina í samvinnu við Ríkislögreglustjóra til notkunar í snjallsíma innan Íslands. Mikil þróun hefur verið á undanförnum árum í notkun öruggri snjallsímaþjónustu sem gerir það kleift að gefa ökuskírteini út með öðrum hætti en á plastkortum.

Ökuskírteinagrunnur og afgreiðslukerfi ökuskírteina er komið til ára sinna og kallaði á stafræna lausn til þæginda fyrir almenning. Nú er tæknileg útfærsla tilbúin og ekkert því til fyrirstöðu að hefja útgáfu á stafrænum ökuskírteinum fyrir snjallsíma, jafnt fyrir Android og iOS stýrikerfi.