Samkomulag um Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu

„Með Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu leggjum við áfram okkar af mörkum á þeim sviðum sem Ísland hefur mikið fram að færa, þ.e. á sviðum jarðvarma, jafnréttis, sjávarútvegs og landgræðslu. Aukið samstarf Íslands og UNESCO býður upp á ýmsa möguleika og við hlökkum til að þróa það enn frekar. Um leið erum við stolt af því að geta haldið áfram að deila þekkingu okkar á þessum mikilvægu málefnum sem eru jafnframt í samræmi við megináherslur UNESCO,“ sagði Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra sem í vikunni undirritaði samkomulag við Audrey Azoulay, aðalframkvæmdastjóra Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna UNESCO um að Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu starfi undir merkjum UNESCO sem sjálfstæð stofnun. Í miðstöðinni koma saman fjórir skólar sem starfræktir hafa verið á Íslandi.

Í frétt á vef utanríkisráðuneytisins segir að þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu (e. International Centre for Capacity Development, Sustainability and Societal Change), einnig nefnd GRÓ, verði fyrsta þverfaglega stofnun sinnar tegundar undir hatti UNESCO.

Í miðstöðinni koma saman fjórir skólar sem hafa fram til þessa verið starfræktir sem skólar Háskóla Sameinuðu þjóðanna hér á landi: Jafnréttisskólinn, Jarðhitaskólinn, Landgræðsluskólinn og Sjávarútvegsskólinn. Skólarnir verða áfram fjármagnaðir af utanríkisráðuneytinu sem hluti af alþjóðlegri þróunarsamvinnu.

Hlutverk Þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu verður sem fyrr að styðja við getu þróunarríkja í Afríku, Asíu og Mið- og Suður-Ameríku á þeim fjórum sviðum sem starfsemin tekur til og auka þar með möguleika þeirra á að ná alþjóðlegum markmiðum sínum í samræmi við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.

Sjá nánar frétt utanríkisráðuneytisins – hér.