8 gefa kost á sér til stjórnar Varðar

Átta manns gefa kost á sér til stjórnar Varðar – fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík. Jón Karl Ólafsson gefur einn kost á sér til formanns Varðar og verður hann því sjálfkjörinn á aðalfundi fulltrúaráðsins sem fram fer næstkomandi fimmtudag, 5. desember, kl. 17:00 í Valhöll. Kosið verður um sjö stjórnarsæti á aðalfundinum.

Framboðsfrestur vegna stjórnarkjörsins rann út kl. 16:00 í gær, en fyrir þann tíma bárust 8 framboð til stjórnar Varðar og voru þau öll úrskurðuð gild.

Eftirfarandi aðilar eru í framboði til formanns Varðar:

Jón Karl Ólafsson

 

Eftirfarandi aðilar eru í framboði til stjórnar Varðar:

Ásmundur Sveinsson

Einar Hjálmar Jónsson

Einar Sigurðsson

Elín Engilbertsdóttir

Gunnar Páll Pálsson

Kristín Sigurey Sigurðardóttir

Matthildur Skúladóttir

Þórarinn Stefánsson