Fundaði með utanríkisráðherra Rússlands

„Þessi nýja sókn íslenskra fyrirtækja í Rússlandi vega auðvitað ekki upp á móti tapinu sem innflutningsbann Rússa á matvælum hefur bakað okkur. Hins vegar sýna þeir að viðskipti Íslands og Rússlands eru þrátt fyrir allt blómleg og fara vaxandi, ekki síst á sviði nýsköpunar og tækni sem eru atvinnugreinar sem skipa æ ríkari sess í íslenskum útflutningi,“ sagði Guðlaugur Þór Þórðarson eftir fund með  Sergei Lavrov utanríkisráðherra Rússlands í Moskvu í dag.

Á fundinum ræddu ráðherrarnir norðurslóðamál, tvíhliða samskipti og viðskipti. Þá voru öryggismál í Evrópu og alþjóðamál einnig til umræðu. Þetta kemur fram í frétt á vef utanríkisráðuneytisins.

Þar segir að þetta sé í fyrsta skipti í átta ár sem utanríkisráðherra Íslands fundi með utanríkisráðherra Rússlands í Moskvu. Síðast fundaði Guðlaugur Þór og Lavrov í Finnlandi í maí á þessu ári þegar Ísland tók við formennsku í Norðurskautsráðinu. Íslands gegnir formennsku í ráðinu fram í maí 2021 en þá tekur Rússland við keflinu.

Ráðherrarnir undirrituðu sameiginlega yfirlýsingu um áframhaldandi samstarf innan Norðurskautsráðsins á fundinum í dag.

„Þótt íslensk og rússnesk stjórnvöld greini á um ýmislegt deilum við sýn á mikilvægi norðurslóða og yfirlýsingin sem við undirrituðum í dag staðfestir það. Hún er gott veganesti fyrir bæði ríkin til að tryggja nauðsynlega samfellu í starfi Norðurskautsráðsins og þar áréttum við þýðingu friðar, stöðugleika og fjölþjóðasamvinnu á þessu viðkvæma svæði,“ sagði Guðlaugur Þór.

Yfirlýsingin tekur auk þess til samvinnu um sameiginleg markmið og aðgerðir hvað varðar sjálfbæra þróun, loftslagsbreytingar, líffræðilegan fjölbreytileika, málefni hafsins og innra starf ráðsins.

Með utanríkisráðherra í för er viðskiptasendinefnd skipuð fulltrúum 19 fyrirtækja, Íslandsstofu, utanríkisráðuneytisins Viðskiptaráðs Íslands og Rússnesk-íslenska viðskiptaráðsins, auk ræðismanna. Viðskiptaráðið var stofnað nýverið með þátttöku 44 fyrirtækja, sem sýnir glöggt áhugann á að efla viðskipti landanna.