Skipulagsreglur

Skipulagsreglur í endurskoðun

Með bakgrunn í ákvörðun síðasta landsfundar skipaði miðstjórn framtíðarnefnd sem hefur það hlutverk að endurskoða skipulagsreglur Sjálfstæðisflokksins. Nefndinni ber að efna til umræðu, kalla eftir tillögum og sjónarmiðum flokksmanna, félaga og ráða.

Í ljósi þessa kallar nefndin nú eftir sjónarmiðum félagsmanna Sjálfstæðisflokksins um það hvort, og þá hverju, væri rétt að breyta í skipulagsreglum flokksins.  Framtíðarnefndin mun jafnframt skoða sérstaklega hvað í reglunum hefur hingað til reynst vel sem og hvað hefur reynst síður vel. Núgildandi skipulagsreglur má nálgast hér.

Nefndin mun fara yfir allar innsendar tillögur auk athugasemda og mun að lokinni greiningarvinnu leggja tillögur sínar um breytingar á skipulagsreglum fyrir miðstjórn.

Tillögum skal skilað á rafrænu formi með Íslykli eða rafrænum skilríkjum fyrir 5. desember nk., sjá nánar hér. En þeir sem ekki hafa rafræn skilríki geta prentað út eyðublað og sent inn til nefndarinnar. Hér má finna nánari upplýsingar um vinnu nefndarinnar og eyðublað til útprentunar.

Á næstu vikum munu fulltrúar nefndarinnar og einstök félög og ráð innan flokksins funda í öllum kjördæmum þar sem vinna nefndarinnar verður kynnt og flokksfólki gefst færi á að koma sínum sjónarmiðum á framfæri. Fundirnir verða að jafnaði auglýstir á samfélagsmiðlum.

Flokksmenn eru hvattir til að taka þátt í þessari vinnu til að sem bestur árangur fáist út úr endurskoðuninni.

Framtíðarnefndina skipa: Atli Kristjánsson, Berglind Ósk Guðmundsdóttir, Birgir Ármannsson, Dagur Ágústsson, Inga Hrefna Sveinbjarnardóttir, Jónas Þór Guðmundsson, Kristín Hálfdánsdóttir, Sigríður Svavarsdóttir og Þórður Þórarinsson.