Laufey Rún nýr starfsmaður þingflokks

Laufey Rún Ketilsdóttir lögfræðingur hefur verið ráðin starfsmaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Laufey Rún hefur þegar hafið störf.

Laufey Rún er fædd 18. júní 1987 í Reykjavík. Hún er lögfræðingur að mennt frá Háskóla Íslands (BA) og Háskólanum í Reykjavík (MA). Þá lauk hún stúdentsprófi af hagfræðibraut Verzlunarskóla Íslands.

Laufey Rún starfaði sem aðstoðarmaður dómsmálaráðherra frá 2017 til 2019. Þar áður starfaði hún hjá Morgunblaðinu, Juris lögmannsstofu, Gjaldskilum innheimtuþjónustu og regluvörslu Arion banka.

Laufey Rún var formaður Sambands ungra Sjálfstæðismanna árin 2015-2017. Þá var hún framkvæmdastjóri SUS árið 2015 og sat í stjórn sambandsins frá 2010. Laufey Rún hefur einnig setið í stjórn Heimdallar, félags ungra Sjálfstæðismanna í Reykjavík.