Viðtalstímar kjörinna fulltrúa vorið 2019

Viðtalstímar kjörinna fulltrúa vorið 2019

Þingmenn og borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins verða, frá og með föstudeginum 12. apríl næstkomandi, með opna viðtalstíma á skrifstofu flokksins í Valhöll, Háaleitisbraut 1.

Viðtalstímarnir munu fara fram á föstudögum frá kl. 12:00 – 13:00. Hver viðtalstími getur verið allt að 15 mínútur að lengd. Vakin er athygli á því að hægt er að óska eftir því að viðtalið fari fram í gegnum síma. Bóka verður tíma fyrirfram en starfsmaður Valhallar mun síðan úthluta viðtalstímum og taka mið af innsendum beiðnum.

Hægt verður að bóka viðtalstíma með því að senda tölvupóst á netfangið skuli@xd.is eða með því að hafa samband við skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í síma 515-1700. Boðið verður upp á viðtalstíma fram í júní. Dagsetningar viðtalstímanna, sem og hvaða fulltrúar verða til viðtals hverju sinni, verða auglýstar nánar á heimasíðu og samfélagssíðum flokksins.

Föstudagurinn 12. apríl

Brynjar Níelsson og Örn Þórðarson

Föstudagurinn 26. apríl

Ásmundur Friðriksson og Hildur Björnsdóttir

Föstudagurinn 3. maí

Birgir Ármannsson og Valgerður Sigurðardóttir

Föstudagurinn 10. maí

Bryndís Haraldsdóttir og Egill Þór Jónsson

Föstudagurinn 17. maí

Njáll Trausti Friðbertsson og Marta Guðjónsdóttir

Föstudagurinn 24. maí

Haraldur Benediktsson og Katrín Atladóttir

Föstudagurinn 31. maí

Jón Gunnarsson og Björn Gíslason

Föstudagurinn 7. júní

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Eyþór L. Arnalds

Föstudagurinn 14. júní

Óli Björn Kárason og Jórunn Pála Jónasdóttir

Föstudagurinn 21. júní

Páll Magnússon og Alexander Witold Bogdanski

Föstudagurinn 28. júní

Vilhjálmur Árnason og Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir