Óskar eftir endurskoðun yfirdeildar MDE

Við höfum síðustu vikur skoðað mismunandi fleti þessa mikilvæga máls. Eftir þá skoðun tel ég rétt að óska endurskoðunar hjá yfirdeild Mannréttindadómstólsins. Ég tel brýnt að fara þessa leið í ljósi þess hve mikilvæga hagsmuni málið snertir hér á landi. Ég mun halda áfram að skoða aðra fleti málsins en á þessu stigi verða ekki teknar frekari ákvarðanir,” segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir varaformaður Sjálfstæðisflokksins og dómsmálaráðherra um þá ákvörðun sína að íslenska ríkið myndi óska eftir endurskoðun yfirdeildar Mannréttindadómstóls Evrópu á dómi MDE í máli Guðmundar Andra Ástráðssonar gegn Íslandi sem féll þann 12. mars sl.

Þar komst meirihluti dómsins að þeirri niðurstöðu að annmarkar á meðferð ráðherra og Alþingis við skipan eins dómara við Landsrétt fælu í sér brot gegn áskilnaði 1. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu (MSE) um að skipan dómstólsins sé ákveðin með lögum.

Í frétt á vef dómsmálaráðuneytisins segir að dómur MDE hafi ekki aðeins áhrif hér á landi heldur einnig um alla Evrópu hvað varði spurningar um hvort skipan dómstóla sé ákveðin með lögum í þeim skilningi sem lagður er til grundvallar í niðurstöðu meirihluta dómsins.

Þar kemur einnig fram að það sé mat sérfræðinga dómsmálaráðuneytisins eftir samráð við ríkislögmann og dr. Thomas Horn, málflutningsmann og sérfræðing í mannréttindum og réttarfari að leita eigi endurskoðunar á dómi MDE enda veki málið upp veigamiklar spurningar um túlkun og framkvæmd mannréttindasáttmála Evrópu.

Talið er að niðurstaða um hvort yfirdeildin taki dóminn til endurskoðunar fáist innan fárra mánaða.