Páskafjör í Reykjavík

Páskaeggjaleit og páskabingó í Reykjavík

Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík efna til páskaeggjaleitar og páskaeggjabingós laugardaginn 6. apríl  og laugardaginn 20. apríl. Um er ræða fjölskylduskemmtanir og eru allir velkomnir.

Félag sjálfstæðismanna í Nes- og Melahverfi efnir til páskaeggjaleitar hjá grásleppuskúrunum við Ægissíðu laugardaginn 6. apríl klukkan 14:00. Leitað verður að fagurlega skreyttum eggjum og börnin fá súkkulaðiegg. Munið að taka með körfur eða poka undir eggin. Fólk er hvatt til að mæta mæta vel klætt og með góða skapið.

Félag sjálfstæðismanna í Grafarvogi stendur svo fyrir árlegu páskabingói laugardaginn 20. apríl. Bingóið hefst í sjálfstæðisheimilinu í Grafarvogi í Hverafold 1-3 (3. hæð á móti hárgreiðslustofunni), kl. 11:00.