Fullt hús með formanni og varaformanni á Akureyri

Fullt var út úr dyrum, eða rúmlega eitt hundrað manns, á kvöldfundi með Bjarna Benediktssyni formanni Sjálfstæðisflokksins og fjármála- og efnahagsráðherra og Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur varaformanni Sjálfstæðisflokksins og dómsmála-, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunaráðherra sem haldinn var í Kaupangi á Akureyri þriðjudagskvöldið 19. mars.

Á fundinum komu mörg mál til umræðu og var hann líflegur og málefnalegur. M.a. var rætt um raforkumál og afhendingaröryggi orku, atvinnuuppbyggingu, skattamál, nýsköpun, öryggismál Ísalands og NATO, málefni aldraðra, millilandaflug og Akureyri sem nýja gátt inn í lanidð, málefni Háskóla Akureyrar, áskoranir á Norðurskautssvæðinu, samgöngumál o.fl.