Kristján Þór fundaði í Reykjavík í hádeginu og heldur fund á Norðurlandi í kvöld

Þessa dagana heldur Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra opna fundi um frumvarp varðandi innflutning á m.a. ófrystu kjöti sem er til umsagnar á samráðsgátt stjórnvalda.

Salurinn í Þjóðminjasafninu var sléttfullur í hádeginu í dag og að lokinni tölu ráðherra voru góðar og málefnalegar umræður.

Í kvöld kl. 20 heldur ráðherra svo opinn fund í Félagsheimilinu Hlíðarbæ í Hörgársveit.

Dagskrá fundanna sem eftir eru:

  • Fimmtudagur 28. feb. kl. 20:00     Félagsheimilið Hlíðarbær, Hörgársveit
  • Mánudagur 4. mars kl. 20:30     Hótel Hamar, Borgarnesi
  • Þriðjudagur 5. mars kl. 20:00    Hótel Valaskjálf, Egilsstöðum

Hér getur þú skilað inn umsögn um frumvarpið á Samráðsgátt stjórnvalda.

Umsagnarfrestur rennur út miðvikudaginn 6. mars nk.

Fréttin er tekin af vef Stjórnarráðsins, sjá hér.