Tekið á móti þingflokknum með söng á Selfossi

Tekið var á móti þingflokki Sjálfstæðisflokksins með söng Karlakórs Selfoss í gær í menningarsalnum á Selfossi áður en opinn fundur þingflokks hófst á Hótel Selfossi.

Á fundinum voru fjölmörg mál rædd, m.a. samgöngumál, ferðamál, landbúnaðarmál, menntamál, skattamál, kjaramál o.fl.

Þingflokkurinn mun í hringferð sinni heimsækja alls um 50 staði á landinu, ýmist með opna fundi eða vinnustaðaheimsóknir.

Dagskrá ferðarinnar má finna á heimasíðu Sjálfstæðisflokksins hér þar sem einnig verða birtar fréttir úr hringferðinni sem og á samfélagsmiðlum.