Vöru- og þjónustuskiptajöfnuður jókst um 15,4%

Vöru- og þjónustuviðskiptajöfnuður nam alls 80 milljörðum á þriðja ársfjórðungi þessa árs og jókst um 11 milljarða frá síðasta ári eða um 15,4%. Þetta kemur fram í nýrri Hagsjá Landsbanka Íslands – sjá hér.

Þar kemur fram að útflutningur á vöru og þjónustu hafi numið 398,2 milljörðum á sama tímabili og aukist um 41,9 milljarða eða 11,8% frá sama tímabili árið 2017. Innflutningur vöru og þjónustu nam á móti 318 milljörðum og jókst um 31 milljarð eða 10.9% á milli ára.

„Þetta er þriðji mesti af­gang­ur sem mælst hef­ur af vöru- og þjón­ustu­viðskipt­um hér á landi á þriðja fjórðungi en metið er frá ár­inu 2016 þegar af­gang­ur­inn mæld­ist 100,4 ma. kr. Árið 2015 mæld­ist einnig meiri af­gang­ur en nú en þá nam hann 81,4 ma. kr.,“ seg­ir í fréttinni.

Þar segir einnig: „Sá afgangur sem verið hefur af vöru- og þjónustuviðskiptum á þriðja ársfjórðungi á síðustu árum skýrist einungis af jákvæðum þjónustujöfnuði enda hefur vöruskiptajöfnuður verið neikvæður á þessum árstíma frá og með árinu 2014.“

Í fréttinni segir að á síðustu árum fyrir efnahagshrunið hafi verið töluverður halli á vöru- og þjónustuviðkiptum samanlagt á þessum ársfjórðungi, en sá halli hafi einungis skýrst af miklum halla á vöruviðskiptum en að aldrei hafi mælst halli á þjónustuviðskiptum.

Sjá: Hagsjá Landsbankans