Það er til önnur leið – Opnir fundir á Hellu og Flúðum um samgöngumál

Jón Gunnarsson alþingismaður og fyrrverandi samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og Vilhjálmur Árnason alþingismaður verða með tvo opna fundi á Suðurlandi um samgöngumál í næstu dögum.

Fyrri fundurinn verður í Safnaðarheimilinu á Hellu, mánudaginn 26. nóvember, kl. 19:30.

Seinni fundurinn verður á Icelandair hótelinu á Flúðum þriðjudaginn 27. nóvember kl. 19:30.

Á fundunum munu þeir ræða samgöngumálin í víðu samhengi og kynna hugmyndir um nýja nálgun við uppbyggingu samgöngumannvirkja og aukinn framkvæmdahraða.

Allir hvattir til að mæta.