Framboðsfrestur vegna miðstjórnarkjörs framlengdur

Kjörstjórn Varðar hefur ákveðið að framlengja framboðsfrestinn vegna miðstjórnarkjörsins til kl. 16:00 föstudaginn 30. nóvember 2018.

Öll þau framboð sem bárust fyrir kl. 16:00 í dag hafa verið úrskurðuð gild. Framboðslistar verða ekki birtir fyrr en að framlengdum framboðsfresti liðnum.

Framboðum skal skilað til skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í Valhöll við Háaleitisbraut 1. Framboð telst gilt, ef það berst á þar til gerðu eyðublaði til skrifstofu Sjálfstæðisflokksins fyrir lok framboðsfrests, enda sé gerð um það skrifleg tillaga af fimm fulltrúum hið fæsta og af ekki fleiri en tíu fulltrúum. Eyðublað fyrir frambjóðendur liggur frammi á skrifstofu Valhallar og er einnig aðgengilegt á xd.is

Vilji frambjóðandi taka þátt í sameiginlegri kynningu skal hann einnig skila inn 200 orða texta um sjálfan sig sem og mynd á tölvutæku formi. Eyðublað vegna viðbótarupplýsinga liggur frammi á skrifstofu Valhallar og er einnig aðgengilegt á xd.is.

Framboð skulu berast til Valhallar eigi síðar en kl. 16.00, föstudaginn 30. nóvember 2018.

Kjörstjórn Varðar hvetur alla sjálfstæðismenn í Reykjavík til að taka þátt.