Vörður auglýsir eftir framboðum til miðstjórnar

Vörður – fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík auglýsir eftir framboðum til miðstjórnar.

Kosning verður skrifleg samkvæmt ákvörðun kjörstjórnar Varðar. Allir félagar fulltrúaráðsins hafa kosningarétt en allir sjálfstæðismenn í Reykjavík geta boðið sig fram.

Framboðum skal skilað til skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í Valhöll við Háaleitisbraut 1. Framboð telst gilt, ef það berst á þar til gerðu eyðublaði til skrifstofu Sjálfstæðisflokksins fyrir lok framboðsfrests, enda sé gerð um það skrifleg tillaga af fimm fulltrúum hið fæsta og af ekki fleiri en tíu fulltrúum. Eyðublað fyrir frambjóðendur liggur frammi á skrifstofu Valhallar og er einnig aðgengilegt á xd.is

Vilji frambjóðandi taka þátt í sameiginlegri kynningu skal hann einnig skila inn 200 orða texta um sjálfan sig sem og mynd á tölvutæki formi. Eyðublað vegna viðbótarupplýsinga liggur frammi á skrifstofu Valhallar og er einnig aðgengilegt á xd.is.

Framboð skulu berast til Valhallar eigi síðar en kl. 16.00, föstudaginn 23. nóvember 2018.

Kosning fer fram í Valhöll dagana 27. og 28. nóvember 2018.

Kjörstjórn Varðar
16.11.2018

Eyðublöð fyrir framboð til miðstjórnar