„Samt skilum við um 29 milljarða afgangi“

„Í fjárlagafrumvarpi næsta árs eru útgjöld til flestra málaflokka að aukast töluvert. Samtals um 33,9 milljarða frá 2018 (fyrir utan launahækkanir og lífeyrisskuldbindingar). Það er 4,8% hækkun útgjalda og langmest fer til heilbrigðis- og velferðarmála. Samt skilum við um 29 milljarða afgangi. Það er ábyrgt og ríkið leggur þannig sitt af mörkum til að halda aftur af verðbólgunni og við getum haldið áfram uppgreiðslu skulda,“ segir Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins á facebook síðu sinni í dag. Sjá nánar hér.

„En Samfylkingin telur ekki nóg gert og vill bæta við 24 milljörðum í útgjöld í viðbót. Það myndi þýða 8% aukningu útgjaldanna! Um leið segja þau að hagspár séu fullbjartsýnar. Þetta sé allt að fara til verri vegar, þau tala niður gjaldmiðilinn og verðbólguna upp.

Afkomunni á svo að redda með auknum sköttum – nema hvað. Það dugar ekki að tekjurnar eru þegar að vaxa um 43 milljarða, þrátt fyrir lækkun tryggingagjalds og hærri persónuafslátt, því hér er hagvöxtur,“ segir Bjarni.

Samfylkingin vill hærri skatta og hærri útgjöld

„Þrátt fyrir að hagkerfið sé að kólna vilja þau leggja 26 milljarða á í nýjum sköttum og gjöldum, m.a. með því að endurtaka hinn misheppnaða sykurskatt sem mun hækka matvöru og verðlag án þess að hafa áhrif á neysluvenjur. Þau vilja líka halda í bankaskattinn upp á 7 milljarða en hann veldur hærra vaxtastigi í landinu (og við ætlum þess vegna að afnema hann í skrefum). Með bankaskattinum vilja þau 33 milljarða hærri skatta. Í heildina myndu þeirra tillögur þýða að skattar og gjöld hækkuðu um 4,7%,“ segir Bjarni á facebook síðu sinni í dag.