Þórdís Lóa er að grínast

Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík:

Það er góður eiginleiki að geta gert grín. Hláturinn lífgar upp á skammdegið. Það var því kærkomið að fá að lesa aðsenda grein í Fréttablaðinu á þriðjudaginn eftir Þórdísi Lóu Þórhallsdóttur, oddvita Viðreisnar, formann borgarráðs og sitjandi borgarstjóra.

Í greininni, sem er skrifuð í klassískum öfugmælastíl segir Þórdís Lóa meðal annars: „Okkur í meirihlutanum er umhugað um góða, ábyrga og gegnsæja stjórnsýslu þar sem aðgengi að upplýsingum er gott og ákvarðanataka byggir á gögnum.“

Eins og lesendum Fréttablaðsins er kunnugt um hafa fréttir um hið andstæða verið um allar meginstofnanir borgarinnar síðustu mánuði. Orkuveitan er komin í rannsókn eftir að þrír stjórnendur stigu til hliðar, Félagsbústaðir fengu falleinkunn í úttekt Innri endurskoðunar og framkvæmdastjórinn hætti. Gæluverkefni SEA sem heyrir undir skrifstofu borgarstjóra hafa farið úr böndunum þrátt fyrir aðvaranir. Umboðsmaður Alþingis, héraðsdómur og úrskurðarnefnd jafnréttismála hafa öll ályktað um rangar ákvarðanir í stjórn borgarinnar. Starfsmenn vitna í útvarpi um að kjörnir fulltrúar viti ekkert um stöðu mála.

En Þórdís Lóa bætir í og segir: „Það er okkur mikið kappsmál að tryggja fyrirmyndar fjármálastjórn og teljum við það sjást skýrt nú?…“ Í þessu samhengi er gott að kíkja í ársreikninga borgarinnar. Þrátt fyrir að álögur séu í hámarki og góðæristekjur séu meiri en áður safnast upp skuldir í borgarsjóði. Það er ekki sjálfbær rekstur. Þetta veit Þórdís Lóa enda með reynslu í viðskiptum. Skuldir borgarsjóðs hækkuðu á fyrstu sex mánuðum þessa árs um fjóra milljarða. Það er milljón á klukkustund. Takk fyrir.

Eitt fyrsta verk eftir kosningar var að kaupa húseignir fyrir hátt í milljarð í Breiðholtinu án þess að nokkur áætlun væri til um hvað ætti að gera við eignirnar, hvað þá hvað það ætti að kosta. Á sama fundi var samþykkt að taka lán upp á milljarð. Einhverjir hafa bent á að eyðslan sé umfram efni. Og eins og góður grínisti kemur Þórdís Lóa með „pönslænið“ í lokin: „Á meðan meirihlutinn í borgarstjórn leggur áherslu á ábyrga fjármálastjórn, vandaðar áætlanir og breytta stjórnsýslu er ljóst að gagnrýni á því sviði er einfaldlega skot í myrkri.“ Það er dýrlegt grínið. Og dýrt. Það er eins gott að þetta var djók hjá Lóu annars hefði greinin ekki verið grín heldur verið slysaskot í fótinn.

Greinin birtist á visir.is 30. október.