Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra mun á næstu tveimur vikum halda tíu opna fundi hringinn í kringum til að ræða nýtt frumvarp til laga um veiðigjald og stöðu sjávarútvegsins almennt.
Fyrsti fundurinn fer fram í kvöld á Hótel Ísafirði og hefst kl. 19:30.
Fundirnir eru öllum opnir og verða á eftirtöldum stöðum:
- Ísafjarðarbær – Hótel Ísafjörður, miðvikudag 10. október kl. 19:30
- Vesturbyggð – Félagsheimilið, fimmtudag 11. október kl. 12:00
- Hellissandur – Félagsheimilið Röstin, fimmtudag 11. október kl. 19:30
- Reykjavík – atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti Skúlagötu 4, þriðjudag 16. október kl. 19:30
- Vestmannaeyjar – Akóges, miðvikudag 17. október kl. 11:30
- Akureyri – KEA Hótel, sunnudag 21. október kl. 19:30
- Þórshöfn – Hafliðabúð, mánudag 22. október kl. 12:00
- Eskifjörður – Valhöll, mánudag 22. október kl. 19:30
- Höfn – Hótel Höfn, þriðjudag 23. október kl. 12:00
- Grindavík – Salthúsið, þriðjudag 23. október kl. 20:00
Frumvarp til laga um veiðigjald má finna í heild sinni hér á vef Alþingis.