Bjarni hitti staðgengil May og ræddi samskipti Íslands og Bretlands

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og David Lidington, ráðherra í ríkisstjórn Theresu May og staðgengill forsætisráðherra Bretlands, funduðu í Birmingham á Englandi í gærmorgun. Frá þessu er greint hér á vef fjármálaráðuneytisins.

Þar kemur fram að á fundinum hafi ráðherrarnir farið yfir nýjustu þróun í viðræðum Breta um útgöngu úr Evrópusambandinu í mars á næsta ári. Þá hafi þeir einnig rætt um samskipti Íslands og Bretlands eftir útgönguna, almennt um viðskipti Íslands og Bretlands og um mikilvægi þess að styrkja tengslin til framtíðar.

Fjármálaráðherra áréttaði að Íslendingar líti á Breta sem eina af mikilvægustu bandaþjóðum sínum. Á fundinum greindi Bjarni breska ráðherranum frá því að vel væri fylgst með þróun þessara mála af hálfu ríkisstjórnar Íslands og áréttaði hann vilja Íslendinga til að útganga Bretlands úr ESB hefði sem minnst áhrif á samskipti landanna.

Í frétt fjármálaráðuneytisins kemur einnig fram að ráðherrarnir hafi almennt rætt um efnahagsmál á Íslandi og þróun síðustu ára. Bjarni afhenti Lidington einnig eintak af nýlegri skýrslu Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands um erlenda áhrifaþætti bankahrunsins. „Í henni er m.a. fjallað um fordæmalausa framgöngu ríkisstjórnar Verkamannaflokksins í garð Íslendinga þegar þáverandi ríkisstjórn Bretlands beitti bresku hryðjuverkalögunum á Íslendinga í tengslum við bankahrunið.“