Hádegisfundur með Bjarna Benediktssyni

Hádegisfundur SES

Vikulegir hádegisfundir Samtaka eldri Sjálfstæðismanna hefjast að nýju á morgun, miðvikudaginn 19. september.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins verður gestur á fyrsta fundi vetrarins en fundurinn hefst kl. 12 á hádegi í Valhöll.

Húsið verður opnað kl. 11:30.

Boðið verður upp á súpu gegn vægu gjaldi, 900 krónur.

Allir velkomnir.

Með kveðju,

Stjórnin.