Viðtalstímar kjörinna fulltrúa

Viðtalstímar kjörinna fulltrúa haustið 2018

Þingmenn og borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins verða, frá og með föstudeginum 14. september næstkomandi, með viðtalstíma á skrifstofu flokksins í Valhöll, Háaleitisbraut 1.

Viðtalstímarnir munu fara fram á föstudögum frá kl. 12:00 – 13:00. Hver viðtalstími verður að hámarki 15 mínútur að lengd. Bóka verður tíma fyrirfram en starfsmaður Valhallar mun síðan úthluta viðtalstímum og taka mið af innsendum beiðnum.

Hægt verður að bóka viðtalstíma með því að senda tölvupóst á netfangið skuli@xd.is eða með því að hafa samband við Sjálfstæðisflokksins í síma 515-1700. Boðið verður upp á viðtalstíma fram í nóvember.

Dagsetningar viðtalstímanna, sem og hvaða fulltrúar verða til viðtals hverju sinni, verða auglýstar nánar á heimasíðu og samfélagssíðum flokksins.

Föstudagurinn 14. september Föstudagurinn 26. október
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Eyþór L. Arnalds Jón Gunnarsson og Björn Gíslason
Föstudagurinn 21. september Föstudagurinn 2. nóvember
Ásmundur Friðriksson og Hildur Björnsdóttir Njáll Trausti Friðbertsson og Örn Þórðarson
Föstudagurinn 28. september Föstudagurinn 9. nóvember
Birgir Ármannsson og Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir Óli Björn Kárason og Jórunn Pála Jónasdóttir
Föstudagurinn 5. október Föstudagurinn 16. nóvember
Brynjar Níelsson og Egill Þór Jónsson Páll Magnússon og Alexander Witold Bogdanski
Föstudagurinn 12. október Föstudagurinn 22. nóvember
Bryndís Haraldsdóttir og Marta Guðjónsdóttir Vilhjálmur Árnason og Valgerður Sigurðardóttir
Föstudagurinn 19. október
Haraldur Benediktsson og Katrín Atladóttir