Aðalfundur Varðar – fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík

Aðalfundur Varðar – fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík verður haldinn miðvikudaginn 12. september n.k. kl. 17:30 í Valhöll.

Dagskrá fundarins:

  1. Ávarp: Gísli Kr. Björnsson, formaður Varðar.
  2. Venjuleg aðalfundarstörf
  3. Önnur mál

Skriflegum framboðum til stjórnar skal skilað til framkvæmdastjóra Varðar á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, eða með tölvupósti á netfangið skuli@xd.is, fyrir kl. 16:00, sunnudaginn 9. september, þremur dögum fyrir aðalfund.

Kjörgengir eru allir meðlimir fulltrúaráðsins.

Athugið að seturétt á fundinum hafa eingöngu fulltrúar í fulltrúaráðinu.

 

Stjórnin.