Munu fylgja tillögum sínum fast eftir

Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lýsa yfir vonbrigðum með að neyðarfundur í borgarráði í gær bar ekki þann árangur sem vonir stóðu til um. Enda gáfu ummæli formanns velferðarráðs Reykjavíkur, Heiðu Bjargar Hilmisdóttur, í morgunþætti Rásar tvö ekki góð fyrirheit fyrir fundinn. Þar lýsti hún yfir skilningsleysi á málefnum heimilislausra og taldi að fundurinn myndi ekki skila neinu. Hins vegar var það áhugavert að meirihlutinn í borgarstjórn fékkst líklega í fyrsta skipti til að viðurkenna að það er brýnn húsnæðisvandi í Reykjavík.

Flestum tillögum stjórnarandstöðuflokkanna á fundi borgarráðs í gær var annað hvort vísað annað, frestað eða felldar. Tillögurnar sneru hvoru tveggja að því að leysa bráðavanda húsnæðislausra og leysa vandann til framtíðar. Að sögn Eyþórs Arnalds mun stjórnarandstaðan fylgja tillögum sínum fast eftir á haustmánuðum.

Það er afar brýnt að við bregðumst við vandanum strax

Aðeins tvær tillögur af ellefu, sem lagðar voru fram, af stjórnarandstöðunni voru samþykktar. Önnur tillagan kveður á um að komið verði á færanlegu húsnæði fyrir neyðarúrræði og hin tillagan snýr að því að greina væntingar og þarfir einstaklinga sem eru í húsnæðisvanda í borginni.

„Það er afar brýnt að við bregðumst við vandanum strax og komum upp færanlegu húsnæði hið fyrsta, s.s. smáhýsum fyrir ólíka hópa húsnæðislausra til bregðast við neyð heimilislausra á meðan verið er að finna varanlegar lausnir, hvort heldur sem það eru einstaklingar eða fjölskyldur,“ segir Eyþór Arnalds.

Meirihlutinn varpar ábyrgðinni yfir á ríkið og önnur sveitarfélög

Meirihlutinn í borgarstjórn ætlar augljóslega að varpar ábyrgðinni af aðgerðarleysi borgarinnar síðustu árin áfram yfir á ríkið og önnur sveitarfélög eins og tillögur þeirra í borgarráði í gær báru með sér. Að mati borgráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins er kominn tími til að borgin axli sjálf ábyrgð á hlutverki sínu í húsnæðismálum fremur en að benda á aðra eins og fram kemur í bókunum stjórnarandstöðuflokkanna í fundargerð.

Að sögn Eyþórs Laxdal Arnalds þarf að taka bæði á bráðavandanum og langtímalausnum en það felur meðal annars í sér að byggt verði á hagkvæmum svæðum.

„Lausnin  til framtíðar er nægt framboð lóða á hagstæðum svæðum Í Reykjavík.  Það tel ég vera lykilatriði í átt að lausn þannig að fólk geti komið sér þaki yfir höfuðið. Þetta er einn liður í því að lækka húsnæðiskostnað,“ segir Eyþór.

„Við viljum lægri gjöld yfir línuna“

Þá segir hann að lækkun byggingarréttargjaldsins sé annar stór liður í að ná niður húsnæðiskostnaði.

„Við bendum á að byggingarréttargjald sé stór hluti vandans, en það er 45.000 kr. á fermetra á leigufélög eins og Bjarg eða 4,5 milljónir á 100 fermetra íbúð. Það þýðir meira en 200 þúsund króna hærri leigu árlega. Við viljum lægri gjöld yfir línuna,“ segir hann.

Sjálfstæðisflokkurinn lagði mikla áherslu á að gripið yrði strax til neyðarráðstafana vegna vanda húsnæðislausra. Í því sambandi má nefna tillögur eins og að komið yrði upp neyðarskýli í Örfirisey sem Hjálpræðisherinn rak og eru ekki lengur til staðar en þeirri tillögu var vísað til velferðarráðs til meðferðar. Þá lagði Sjálfstæðisflokkurinn jafnframt áherslu á lækkun langtímaleigu á tjaldsvæði í Laugardal en sú tillaga var felld ásamt þeirri tillögu að segja upp samningi við rekstraraðila tjaldsvæðisins.

Slóð á fundargerð borgarráðs má nálgast hér