Að semja um árangur

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins:

Alþjóðaefnahagsráðið, World Economic Forum, gefur árlega út skýrslu um samkeppnishæfni ríkja. Í þeirri nýjustu er Sviss í 1. sæti en á lista tíu efstu komast bæði Svíþjóð og Finnland. Ísland situr í 28. sæti.

Hvaða máli skiptir samkeppnishæfni? Með ákveðinni einföldun er verið að mæla getu landa til að byggja upp góð lífskjör. Framleiðni er lykilþáttur, styður við vöxt, sem leiðir til hærri tekna og almennt til aukinnar velferðar. Þetta er því mæling á getu til að skapa gott samfélag.

Hlutfallslegur launakostnaður fyrirtækja á Íslandi er með því hæsta í OECD og mörgum þykir gengið fullsterkt. En erum við orðin of vön því að umræða um efnahagsmál snúist nær einvörðungu um gengi gjaldmiðilsins og launaþróun ólíkra hópa innbyrðis? Það þarf ekki lítinn launakostnað eða veikan gjaldmiðil til að vera samkeppnishæf, eins og sést af stöðu Sviss. Við ættum að ræða meira um framleiðni sem er þekkt vandamál hér, enda mælumst við verst í framleiðniaukandi þáttum.

Samkvæmt skýrslu WEF stöndum við okkur best allra á tveimur sviðum: Í afkomu ríkisfjármálanna og stöðugu verðlagi. Það hefði einhvern tímann þótt saga til næsta bæjar. Endurskipulagning ríkisfjármála, uppgjör slitabúa bankanna og hagfelldar ytri aðstæður hafa átt þátt í því að skapa stöðugleika sem er nánast óþekktur í íslenskri hagsögu.

Þessi stöðugleiki er ekki sjálfsagður. Skeytasendingar og hástemmdar yfirlýsingar um róttækar aðgerðir eru ótímabærar og það er mikilvægt að það samtal sem fram undan er fari þannig fram að samhengi hlutanna sé öllum ljóst. Á vinnumarkaði stendur valið á milli þess að semja um frekari árangur – eða innantómar tölur.

Við höfum góða stöðu í höndunum. Höfum saman náð miklum árangri við að bæta lífskjörin og auka kaupmátt. Frekari sókn til bættra lífskjara mun að mestu leyti ráðast af getu okkar til að auka framleiðnina og skapa ný verðmæti. Til þess er mikilvægt að á vinnumarkaði náist samstaða um að viðhalda efnahagslegum stöðugleika og að aðgerðir tengdar vinnumarkaði skili sér í raunverulegum kjarabótum.

Greinin biritist fyrst í Fréttablaðinu 1. ágúst 2018.