Meirihlutasamstarf við B-lista í Dalvíkurbyggð

D-listi Sjálfstæðismanna og óháðra og B-lista framsóknar- og félagshyggjufólks undirrituðu málefna- og samstarfssamning í sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar fyrir komandi kjörtímabil þann 31. maí sl.

Forseti sveitarstjórnar verður Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson, oddviti D-lista. Formaður byggðarráðs verður Jón Ingi Sveinsson af B-lista og Katrín Sigurjónsdóttir, oddviti B-lista, verður sveitarstjóri.

Dalvíkurbyggð er 24. stærsta sveitarfélag landsins og hluti af Norðausturkjördæmi. Þar bjuggu 1.880 manns þann 1. janúar 2018. Á vef Dalvíkurbyggðar segir að tekið sé mið af stefnumálum beggja framboðanna í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna 26.maí 2018.

Lögð verður áhersla á ábyrga og nútímalega stjórnunarhætti sem miða að því að laða fram það besta í samfélaginu. Lagt er upp með að allir kjörnir fulltrúar vinni sem ein heild og sjónarmið allra séu virt og skoðuð. Áhersla er á gott samstarf og samráð við starfsfólk sveitarfélagins. Fjölgun íbúa er langtímamarkmið, að laða að nýtt fólk og halda í þann mannauð sem fyrir er. Umhverfismál og málefni Dalbæjar og eldri borgara verða áherslupunktar á kjörtímabilinu.

Málefnasamningurinn verður birtur eftir fyrsta fund sveitarstjórnar Dalvíkurbyggðar sem er áætlaður þann 11. júní næstkomandi.