Samstarf við Framsókn og óháða í Hafnarfirði

Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn og óháðir í Hafnarfirði hafa komist að samkomulagi um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn Hafnarfjarðar.

Ákveðið er að Rósa Guðbjartsdóttir verði bæjarstjóri, Ágúst Bjarni Garðarsson, oddviti B-lista, verði formaður bæjarráðs og Kristinn Andersen verði forseti bæjarstjórnar.

Verið er að leggja lokahönd á málefnasamning nýs meirihluta sem kynntur verður stofnunum flokkanna og í kjölfarið opinberlega eftir helgi. Í samningunum er lögð áhersla á málefni fjölskyldunnar, eldri borgara og skilvirka þjónustu í þágu íbúa og fyrirtækja.