Þarf breytingar í borginni?

Inga María Hlíðar Thorsteinsson, 16. sæti í Reykjavík:

Sveitastjórnarkosningarnar verða 26. maí næstkomandi.

Ég treysti fólkinu sem leiðir lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík til þess að gera mikilvægar og nauðsynlegar breytingar á borginni. Ég er í framboði fyrir flokkinn og styð hann í áherslum sínum vegna þess að mér finnst ótækt að:

*Meirihlutinn hafi selt landið, þar sem langódýrast hefði verið að setja niður Sundarbraut, í þeim tilgangi að útiloka að framkvæmdir gætu hafist á brautinni. Að verið sé að þrengja göturí borginni á meðan umferðartafir hafa aukist.

*Meirihlutinn skuli hafa eytt 500 milljónum í framkvæmdir á Miklubraut við Klambratún og lofi nú að setja Miklubrautina í stokk sem myndi gera þær framkvæmdir að engu.

*Að kostnaður við rekstur leikskóla hafi lækkaði á árinu vegna manneklu á leikskólunum. Að borgin hafi ekki notað þá fjármuni sem “spöruðust” við mannekluna til að bæta kjör þeirra sem eftir eru í starfi á leikskólunum, aðbúnað þar og/eða farið í aðgerðir til þess að mæta þessum mannekluvanda. Að leikskólagjöld hafi verið lækkuð á sama tíma og ekki virðist vera til nægur peningur til að greiða starfsfólki á leikskólum nægilega há laun. Sú lækkun er fljót að hverfa þegar staðan í leikskólamálum bitnar á vinnu foreldra með tilheyrandi tekjutapi. Þvílíkur bjarnargreiði borgaryfirvalda.

*Að verið sé að fjölga borgarfulltrúum og þenja út embættismannakerfið með tilheyrandi launakostnaði þegar skuldir borgarinnar fara stighækkandi ár frá ári.

*Að hugsa til þess að ungt fólk sé margt að flytja úr höfuðborginni vegna þess að borgin hefur ekki sinnt hlutverki sínu sem skyldi í að tryggja nægilegt framboð og úthluta lóðum. Of lítið framboð hefur keyrt upp fasteignaverðið. Það að íbúðir, auglýstar sem fyrstu kaup fyrir ungt fólk, séu að kosta um 40 milljónir króna er óásættanlegt.

*Að íbúar séu látnir kjósa um sjálfsagt viðhald á eignum borgarinnar með hverfakosningum þar sem þeir velja á milli viðhalds eða gæluverkefna.

… auk margra fleiri atriða.

Ég hef aldrei verið sannfærðari um að breytinga sé þörf í borginni, þar sem áhersla verði lögð á breyttan rekstur og forgangsröðun mikilvægustu verkefnanna. Sjálfstæðisflokkinn er eini flokkurinn sem á möguleika á að leiða nýjan meirihluta til þess að fylgja breytingunum eftir. Ég er stolt af því að tilheyra þeim öfluga hópi sem prýðir lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.

Höfundur er ljósmóðurnemi.

Greinin birtist fyrst á Vísi.is 14. maí 2018