D-listi Sjálfstæðismanna og óháðra í Hrunamannahreppi

Jón Bjarnason, búfræðingur, verktaki, ferða- og sauðfjárbóndi, skipar efsta sæti á D-lista Sjálfstæðismanna og óháðra í Hrunamannahreppi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar, en listinn var samþykktur í kvöld.

Í öðru sæti er Bjarney Vignisdóttir, bóndi, hjúkrunarfræðingur, garðyrkjufræðingur og sveitarstjórnarmaður og Sigfríð Lárusdóttir, sjúkraþjálfari, er í þriðja sætinu.

Þetta er í fyrsta sinn sem D-listi er boðinn fram í Hrunamannahreppi. Sveitarfélagið telur um 780 íbúa og byggðakjarni þess er Flúðir.

Listinn er skipaður 4 konum og 6 körlum.

Listinn í heild:

  1. Jón Bjarnason, Hvítárdal, búfræðingur, verktaki, ferða- og sauðfjárbóndi
  2. Bjarney Vignisdóttir, Auðsholti 6, bóndi, hjúkrunarfræðingur, garðyrkjufræðingur og sveitarstjórnarmaður
  3. Sigfríð Lárusdóttir, Hvammi 1, sjúkraþjálfari
  4. Rúnar Guðjónsson, Melum Flúðum, útskriftarnemi í ML og formaður Ungmennaráðs Suðurlands
  5. Þröstur Jónsson, Högnastíg Flúðum, húsasmíðameistari og garðyrkjubóndi
  6. Ásta Rún Jónsdóttir, Vesturbrún Flúðum, grunnskólakennari og deildarstjóri leikskóla
  7. Bjarni Arnar Hjaltason, Borgarási, búfræðingur
  8. Hanna Björk Grétarsdóttir, Miðfelli 1, verslunarstjóri
  9. Björgvin Viðar Jónsson, Dalbæ, hagfræðinemi í HÍ
  10. Magnús Gunnlaugsson, Miðfelli 5, hrossaræktandi, fyrrverandi bóndi og sveitastjórnarmaður