Fundur um þriðja orkumálapakka Evrópusambandsins inn í EES samninginn.

Þriðjudaginn 10. apríl kl. 17:00 -19:00 verða Atvinnuveganefnd Sjálfstæðisflokksins og Vörður með opna málstofu í Valhöll um væntanlega innleiðingu þriðja orkumálapakka Evrópusambandsins inn í EES samninginn.

 

Dagskrá:

  1. Óli Björn Kárason, alþingismaður
  • Á Alþingi síðasta orðið. Hverjar eru skyldur þingmanna gagnvart EES-samningnum

2. Stefán Már Stefánsson, prófessor í lögum við Háskóla Íslands

  • Stjórnarskráin og heimildir til framsal ríkisvalds.

3. Elías Elíasson, sérfræðingur í orkumálum

  • Markaðsstýring raforkugeirans.

4. Umræður

Til stendur að taka þriðja orkumarkaðslagabálk ESB inní EES samninginn og með því lytu Íslendingar forsjá ACER (orkustofu ESB) og eftirliti ESA í orkumálum.  ACER er stofnun sem ræður orkumálum innan ESB og ganga ákvarðanir stofnunarinnar framar vilja einstakra ríkja í málum er varða sölu og flutningi á orku. Leggja á málið fyrir Alþingi á næstunni. Hvorki eru að fullu séð fyrir áhrif á stjórnun og nýtingu íslenskara orkuauðlinda né á eignarhald.

Með þriðja orkulagabálknum hyggst ESB tryggja virka samkeppni á hinum sameiginlega raforkumarkaði ESB, samræma reglur þannig að sérreglur einstakra þjóða hefti ekki samkeppni og koma sér upp stofnun sem hefur vald til að útkljá deilur um flutning milli ríkja.

Evrópusambandið hefur lagt mikla áherslu á miðstýringu orkumála sem hið „fimmta svið frelsis“ undir yfirstjórn ACER. Að framselja slíkt vald til erlendrar stofnunnar, þar sem Ísland hefði eingöngu rétt sem áheyrnarfulltrúi, telja margir vera stjórnarskrábrot.