Prófkjör Sjálfstæðismanna í Rangárþingi ytra

Sjálfstæðisfélögin Fróði og Fjölnir, félag ungra Sjálfstæðismanna standa fyrir prófkjöri þann 14. apríl nk. til uppröðunar á D-lista í Rangárþingi ytra fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor.

Prófkjörið fer fram í Miðjunni á Hellu, 2. hæð (Fyrir innan Verkalýðsfélagið), og stendur frá kl. 10:00-18:00 á prófkjörsdag.

Prófkjörið er opið öllum flokksbundnum Sjálfstæðismönnum, 16 ára og eldri, sem skráðir eru í flokkinn kl. 16:00, föstudaginn 13. apríl sem og þeim stuðningsmönnum flokksins, 18 ára og eldri, sem undirrita inngöngubeiðni á prófkjörsdag. Hægt er að skrá sig í flokkinn á vefnum hér.

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst miðvikudaginn 4. apríl og verður á sama stað og prófkjörið verður haldið alla virka daga til 13. apríl frá kl. 17:00-18:30. Einnig laugardaginn 7. apríl frá kl. 10:00-11:30.

Þá verður sömuleiðis hægt að kjósa utankjörfundar í Valhöll, Háaleitisbraut 1 í Reykjavík virka daga frá 4. – 13. apríl á opnunartíma skrifstofunnar. Minnum á að hafa skilríki meðferðis.

Eftirfarandi frambjóðendur taka þátt í prófkjörinu (hægt er að smella á hvern og einn til að nálgast nánari upplýsingar):

Einnig má finna rafrænan kosningabækling með upplýsingum um prófkjörið og alla frambjóðendur hér.

Kjörnefndin